Allir gegnumlýstir en engir vindsokkar Óli Tynes skrifar 4. apríl 2011 15:50 Kári Kárason, flugstjóri
Helstu áhættuþættir í flugi á Íslandi eru tengdar hinu opinbera, að mati fráfarandi formanns Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Í fréttabréfi FÍA segir Kári Kárason flugstjóri frá því sem hann kallar miskunnarlausan niðurskurð í flugmálum. Hann hafi leitt til þess að flugvöllum hafi verið lokað og því séu færri lendingarstaðir fyrir loftför í hrakningum. Leiðsöguvitar hafi verið aflagðir og því færri leiðir til að ákvarða stöðu loftfars í blindflugi. Nær engin leið sé að gera blindaðflug að flugvöllum með öryggi. Kári segir að viðhald flugbrauta hafi verið skert og því meiri hætta á að aðskotahlutir valdi skemmdum og jafnvel slysum. Viðhaldi á ljósabúnaði og viðvörunarljósa á hindrunum sé frestað í lengri tíma og því meiri hætta á árekstrum við loftnet og hindranir. Þá nefnir hann að loftför Landhelgisgæslunnar séu jafnvel á undanþágum frá viðhaldsskoðunum og engar varaþyrlur til taks þegar kemur að stórum tímafrekum skoðunum. Allir gegnumlýstir Kári bendir á að hundruðum milljóna króna sé veitt í síaukna flugvernd á Keflavíkurflugvelli. Þar séu ráðnir fleiri öryggisverðir og fjárfest í nýjum gegnumlýsingarbúnaði fyrir hundruð milljóna króna á næstu árum. Til samanburðar getur hann þess að vesæll vindpoki hafi verið tekinn niður við flugbraut númer 11 sem sé þekkt fyrir misvinda eftir lengd sinni. Kári segir að flugvernd sé vissulega góðra gjalda verð. Almennt flugöryggi megi þó ekki líða fyrir ofuráherslu á hana.
Mest lesið Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Innlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Innlent Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Erlent Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Innlent Árni Þórður er látinn Innlent Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Innlent Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Innlent Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Erlent Fleiri fréttir Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum „Við mætum þessu með því að stækka fánann“ Regnbogafáninn í Hveragerði útbíaður hatursorðræðu Óboðlegt að fangaverðir eigi í hættu að stórslasast í vinnunni „Maður er bara einhvern veginn að vega salt“ Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ „Alvöru úttekt“ verði gerð á máli Brákarborgar Enginn handtekinn í sérsveitaraðgerð í Vogahverfi Árni Þórður er látinn Grunaður um heimilisofbeldi skömmu fyrir meint manndráp Ummerki eftir hlaupið stóra í sigkötlum í Mýrdalsjökli Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Fann skotfæri úr fórum nasista á Hlíðarfjalli Sjá meira