Innlent

Sparkaði í höfuð lögreglumanns

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan hafði afskipti af ölvuðum mönnum í Hveragerði um helgina. Mynd/ Rósa.
Lögreglan hafði afskipti af ölvuðum mönnum í Hveragerði um helgina. Mynd/ Rósa.
Karlmaður sparkaði í höfuð lögreglumanns þegar að verið var að handtaka hann í Hveragerði aðfaranótt sunnudagsins. Það var rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt sunnudags að óskað var eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna átaka tveggja ölvaðra manna á heimili í Hveragerði. 

Lögreglumenn handtóku annan manninn.  Á meðan handtökunni stóð sparkaði maðurinn í höfuð lögreglumanns.  Það kom ekki í veg fyrir að lögrreglumönnum tækist að yfirbuga mótþróa hans en framkoma mannsins var ofsafengin.  Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina á Selfossi þar sem hann var látinn sofa úr sér.  Hann var síðan yfirheyrður þegar af honum var runnið.  

Lögreglumaðurinn fór á heilsugæslustöðina á Selfossi þar sem læknir kannaði áverka hans sem reyndust ekki alvarlegir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×