Innlent

Vonast eftir samningum áður en vikan er liðin

Mynd/Pjetur
Aðilar vinnumarkaðarins munu í dag eða á morgun kynna stjórnvöldum breytingartillögur við útspili stjórnvalda frá því fyrir helgi. Vonast er til að nýr kjarasamningur til þriggja ára liggi fyrir áður en vikan er liðin, þar sem almennar launahækkanir verði yfir átta prósent á samningstímanum.

Allt kapp er nú lagt á að klára nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í þessari viku. Ríkisstjórnin kynnti tillögur sínar til að liðka fyrir samningum fyrir helgina, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að tvöfalda framlag til vegagerðar miðað við heimildir í fjárlögum þessa árs og næstu þrjú árin. Með þeirri aðgerð vilja stjórnvöld skapa atvinnu og stefna að því að atvinnuleysið fari niður í fimm prósent á samningstímanum, en það er nú á bilinu sjö til átta prósent.

Forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins þrýsta á stjórnvöld að lækka tryggingagjald fyrirtækja, sem var hækkað verulega á þar síðasta ári vegna aukins atvinnuleysis. En tryggingagjaldið stendur undir greiðslum atvinnuleysistryggingasjóðs. Með lækkun gjaldsins segja atvinnurekendur mögulegt að hækka almen laun meira á næstu þremur árum en þau átta prósent sem Samtök atvinnulífsins hafa boðið. Alþýðusambandsforystan segir það hins vegar allt of litla hækkun á svo löngum samningstíma.

Þá leggur forysta ASÍ áherslu á að lágmarkslaun verði ekki undir tvö hundruð þúsund krónum á mánuði. Samningamenn ASÍ komu saman til fundar klukkan ellefu í morgun og samningamenn Samtaka atvinnulífsins hafa einnig fundað nú fyrir hádegi. Sameiginlegur fundur er síðan fyrirhugaður um eitt leytið.

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er ekki víst að ASÍ og SA takist að fullvinna svar sitt til stjórnvalda í dag, en ef það gerist verða þau svör kynnt fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í dag, annars ekki fyrr en á morgun.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA voru báðir bjartsýnir á það í fréttum okkar í gærkvöldi að gerð kjarasamninga ljúki í þessari viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×