Innlent

Erlend ferðakona slasaðist á Þingvöllum

Erlend ferðakona um sextugt slasaðist í andliti þegar hún féll í tröppu rútubíls við Hakið á Þingvöllum um miðnæturbil.

Konan var flutt með sjukrabíl á Slysadeild Landsspítalans í Reykjavík, en óttast var að hún hefði nef- og kinnbeinsbrotnað og blæddi töluvert úr sárum hennar. Hún var í hópi útlendinga, sem voru að skoða norðurljósin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×