Handbolti

Kristín: Mögnuð upplifun

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta var hreinlega geggjað og rosaleg upplifun,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, eftir að Valur hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann Fram eftir tvíframlengdan leik, en eftir það var að grípa til vítakastkeppni.

„Þessi áhorfendur sem við eigum hér er gjörsamlega frábærir og það var einstaklega gaman að spila fyrir framan þá. Ég verð einnig að hrósa Framliðinu en þær voru frábærar í kvöld og gerðu okkur erfitt fyrir“.

„Það lið sem er minna taugastrekt vinnur svona vítakeppnir,“ sagði Kristín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×