Innlent

Stal fullum poka af matvælum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar.
Poka fullum af matvælum var stolið af íbúa í Vestmannaeyjum síðasta þriðjudag. Eigandinn var að bera muni úr bifreið sinni upp tröppur sem liggja að íbúð hans á Bárustíg 66.

Hafði hann skilið ýmsa muni eftir á gangstéttinni á meðan hann fór upp í íbúðina. Þegar hann snéri svo aftur til þess að sækja restina var búið að stela pokanum með matvælunum.

Ekki er vitað hver var að verki, en lögreglan óskar eftir upplýsingum frá bæjarbúum, hafi þeir orðið einhvers varir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×