Handbolti

Stefán: Höfum ekki unnið eitt né neitt

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Að sigra þennan leik var virkilega mikilvægt og við erum komnar í þægilega stöðu,“ sagði Stefán Arnarsson, þjálfari Vals, eftir sigurinn í dag.

 

Valsstúlkur unnu Fram 20-19 í öðrum leik liðanna og leiða því einvígið um Íslandsmeistaratitilinn 2-0.

 

„Við erum aftur á móti ekki búnar að vinna eitt né neitt. Við komumst í þessa stöðu í fyrra en þá komu Framarar til baka í næsta leik og galopnuðu einvígið. Við verðum að halda rétt á spöðunum til að klára dæmið. Þetta einvígi snýst um vörn, markvörslur og hugafar og það lið sem er sterkara á því sviði mun fara langt. Við munum mæta tilbúnar á miðvikudaginn og klára titilinn í næsta leik,“ sagði Stefán eftir sigurinn í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×