Erlent

Sonur lögreglumanns ákærður fyrir að kveikja í lögregluskóla

Danska lögreglan.
Danska lögreglan.
Fjórir danskir menn á aldrinum 20 til 23 ára voru í gær ákærðir fyrir að reyna að kveikja í lögregluskóla í Kaupmannahöfn.

Í ljós hefur komið að einn mannanna er sjálfur sonur lögreglumanns samkvæmt frétt Ekstra blaðsins.

Það var í janúar á þessu ári sem mennirnir reyndu að kveikja í skólanum.

Mennirnir eru róttækir aðgerðarsinnar og er talið að ástæða íkveikjutilraunarinnar tengist aðgerðum lögreglunnar í Kristjaníu, sem stjórnvöld hafa ákveðið að loka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×