Erlent

Krókódíll inni á klósetti

Kona í Flórída fékk vægt sjokk þegar hún kom heim til sín og fann stærðarinnar krókódíl inni á klósetti. Kvikindið hafði troðið sér inn um litla lúgu sem ætluð er heimilisköttunum og hafði komið sér vel fyrir inni á klósetti. Konan rauk út úr íbúðinni og hringdi á lögregluna en hún óttaðist um kettina sína tvo. Krókódíllinn hafði þó fúlsað við kisunum sem voru heilar á húfi en þó nokkuð skelkaðar. Króksi var síðan handsamaður og fluttur út í fenin sem umlykja bæinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×