Innlent

Enn þungt haldin á gjörgæsludeild

Kona sem varð fyrir árás á heimili sínu í gærmorgun liggur enn þungt haldin á gjörgæsludeild. Henni er haldið sofandi í öndunarvél.

Maður konunnar er grunaður um verknaðinn og hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðahald. Talið er að hann hafi tekið konuna kverkataki þar til hún missti meðvitund.

Maðurinn, sem er rúmlega sextugur, hefur áður komið við sögu lögreglu. Hann var dæmdur fyrir stórfellt fíkniefnasmygl á níunda áratuginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×