Vestmannaeyjabær íhugar stjórnsýslukæru vegna dagssekta 12. maí 2011 09:22 Bæjarstjóri Vestmannaeyja telur Umhverfisstofnun brjóta á bæjarfélaginu
Vestmannaeyjabær íhugar stjórnsýslukæru á hendur Umhverfisstofnun vegna vinnubragða stofnunarinnar við mat á mengun frá sorpbrennslustöð bæjarfélagsins og ákvörðunar um að beita Vestmannaeyjabæ dagsektum. Ákvörðun Umhverfisstofnunar byggir á því að mengun frá sorpbrennslustöðinni mældist yfir mörkum, og því að bæjarfélagið hafi ekki gert nauðsynlegar úrbætur á hreinsibúnaði stöðvarinnar. Umhverfisstofnun kunngerði ákvörðun sína um dagsektir í gær. Vestmannaeyjabær gagnrýnir að í tilkynningu frá Umhverfisstofnun hafi láðst að geta þess að bæjarfélagið hafi gripið til margvíslegra úrræða til að draga úr mengun. Í tilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, segir að bæjarfélagið hafi óskað eftir nýrri mælingu á menguninni þar eð mengunarvarnarbúnaður hafi verið að hluta óvirkur þegar fyrri mæling Umhverfisstofnunar var gerð. Einnig fór bæjarfélagið formlega fram á að beðið yrði með íþyngjandi ákvæði, þar með taldar dagsektir, þar til ný mæling lægi fyrir. „Í stað þess að fresta úrskurði meðan beðið væri eftir niðurstöðu mælinga valdi Umhverfisstofnun að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem boðaðar voru dagsektir á Vestmannaeyjabæ sem og önnur íþyngjandi ákvæði - allt byggt á mælingu sem Vestmannaeyjabær dró í efa," segir í tilkynningunni. Þá er bent á að nýjar mælingar hafi sýnt að mengun var ekki jafn mikil og í fyrri mælingu, og því forsendur ákvörðunar Umhverfisstofnunar rangar. „ Í ljósi nýrra mælinga sem sýna að ekki einungis hefur Umhverfisstofnun sniðgengið þessar athugasemdir heldur beitt verulega íþyngjandi úrræðum á grunni mælinga sem nú ekki gefa rétta mynd af ástandi mála - eins og bent hafði verið á - íhugar Vestmannaeyjabær nú að fela lögfræðingi sveitarfélagsins að leita réttar þess á grundvelli m.a. rannsóknarreglu stjórnsýslulaga (þar sem kveðið er á um að mál séu nægjanlega upplýst áður en tekin er ákvörðun í þeim) og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga (þar sem m.a. er kveðið á um að stjórnvald skuli gæta þess að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til)," segir í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar.
Mest lesið Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Innlent Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Innlent Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Erlent Fundinn heill á húfi Innlent Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Innlent Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Sjá meira