Innlent

Ákveða hvaða mál verða afgreidd fyrir sumarleyfi

Formennirnir hittust klukkan fimm í dag.
Formennirnir hittust klukkan fimm í dag.
Formenn þingflokka funda þessa stundina þar sem reynt verður að ná samkomulagi um hvaða mál verða afgreidd áður en Alþingi fer í sumarleyfi í næstu viku.

Ríkisstjórnin leggur áherslu á að minnsta kosti annað frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða komist á dagskrá þingsins fyrir sumarhlé, en stjórnarandstaðan hefur tekið fálega í þann málflutning.

Forsætisráðherra útilokar ekki að boðað verði til sumarþings til að afgreiða fiskveiðistjórnunarfrumvörpin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×