Innlent

Þjónustumiðstöð á Kirkjubæjarklaustri

Mynd/Valgarður
Mynd/Valgarður
Þjónustumiðstöð almannavarna á Kirkjubæjarklaustri tók til starfa s.l. föstudag.  Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að meginverkefni hennar verði að sinna eftirmálum eldgossins í Grímsvötnum sem snúa að íbúum, sveitarfélögum og uppbyggingarstarfi.

Þjónustumiðstöðin er staðsett í grunnskólanum á Klaustri og er opin öllum þeim sem þurfa aðstoð eða upplýsingar vegna eldgossins.  Þjónustumiðstöðin verður virk eins lengi og þurfa þykir en frá og með mánudeginum 30. maí verður viðvera frá kl.10:00-13:00.

Hægt er að ná sambandi við fulltrúa þjónustumiðstöðvarinnar í síma 847 5715 og með tölvupósti í netfangið adstod.klaustur@gmail.com

Hægt að ná sambandi við fulltrúa þjónustumiðstöðvarinnar í ofangreindu símanúmeri utan viðverutíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×