Innlent

Fall sparisjóðanna verði rannsakað

Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður allsherjarnefndar.
Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður allsherjarnefndar. Mynd/GVA
Allsherjarnefnd Alþingis hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að fram fari rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna. Tillagan gerir ráð fyrir að Alþingi skipi þriggja manna rannsóknarnefnd til að vinna þessa vinnu. Nefndinni er ætlað að leggja mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um starfsemi sparisjóða, eftirlit með henni og hverjir kunni að bera ábyrgð á því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×