Innlent

Tuttugu og þrír stútar teknir úr umferð

Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu um helgina þar sem þeir höfðu ekið undir áhrifum, þar af sex vegna fíkniefnaneyslu og 23 vegna áfengisneyslu. Einn ökumaðurinn var með barn með sér í bílnum auk fullorðins farþega, en hann var líka ölvaður og gat ekki tekið við akstrinum.

Þetta er óvenju mikill fjöldi um eina helgi á þessu svæði. Þrátt fyrir það hefur dregið töluvert úr ölvunarakstri undanfarin misseri og slysum, þar sem ölvaðir ökumenn koma við sögu, fer einnig fækkandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×