Innlent

Meintur nauðgari skal sitja áfram í varðhaldi

Ungur karlmaður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá því í apríl og er grunaður um að hafa nauðgað tveimur stúlkum skal sitja áfram í varðhaldi til 24. júní. Hæstiréttur komst að þessari niðurstöðu í dag en maðurinn hafði áður kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.

Maðurinn er grunaður um að hafa, í félagi við annan mann, nauðgað 19 ára stúlku í heimahúsi og beitt hana öðru ofbeldi. Hann er talinn hafa haft frumkvæði að ofbeldisverkinu. Við yfirheyrslur viðurkenndi maðurinn að hafa haft samfarir við stúlkuna en sagði þær hafa verið með samþykki allra. Vitnisburður stúlkunnar og hins mannsins þykir hinsvegar renna stoðum undir að um nauðgun hafi verið að ræða.

Umræddur maður er einnig grunaður um að hafa nauðgað 17 ára stúlku í lok mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×