Innlent

Þriggja bíla árekstur í Ártúnsbrekkunni

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Þriggja bíla árekstur varð í neðri hluta Ártúnsbrekkunnar fyrir stundu. Samkvæmt ökumanni sem Vísir ræddi við, varð áreksturinn þar sem umferðin gengur Austur að Mosfellsbæ.

Lögreglan var ekki komin á vettvang, en þær upplýsingar fengust hjá varðstjóra að lögreglan væri á leiðinni á slysstað. Ekki er ljóst hvort ökumenn eða farþegar séu slasaðir.

Mikil töf hefur orðið á umferð vegna árekstursins, og má búast við frekari töfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×