Innlent

Sló mann í höfuðið með bjórglasi og braut þrjár rúður

Karlmaður var handtekinn og kærður fyrir að slá annan mann í andlitið með bjórglasi á skemmtistaðnum 800 Bar á Selfossi um helgina. Sá sem var sleginn fékk skurð á ennið.

Árásamaðurinn var færður til yfirheyrslu á lögreglustöðina á Selfossi, en skömmu áður hafði hann einnig gengið berserksgang á skemmtistaðnum og braut þrjár rúður.

Þá var hundrað lítrum af dísilolíu stolið af vinnuvél við Seyðishóla í Grímsnesi aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku. Lögreglan grunar að þar hafi verið á ferð jeppamenn á 44 tommu hjólbörðum.

Í síðustu viku var svo 15 hestafla Suzuki utanborðsmótor og rauðum 20 lítra bensíntanki stolið úr litlum báti sem var í við flæðamálið á Þingvallavatni í landi Miðfells.

Þá voru sextán ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og níu fyrir að vera ekki með öryggisbeltin spennt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×