Innlent

Kveikti í nýlegum Audi

Gerð var tilraun til að kveikja í nýlegum Audi fólksbíl, sem stóð við Tangarhöfða í Reykjavík í nótt. Vitni tilkynnti um reyk úr bílnum, en þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang var hann að mestu út dauður, en greinileg ummerki voru um að bensíni hafði verið hellt inn um aðra aftur hurðina og eldur borinn að.

En gerandinn hefur líklega lokað hurðinni of vel aftur, þannig að eldinn hefur skort súrefni. Bíllinn er þó sviðinn að innan og mikið skemmdur, en gerandinn er ófundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×