Innlent

Skýjað yfir miðbæ Reykjavíkur

Börnin skemmta sér í hringekju sem komið hefur verið fyrir framan stjórnarráðshúsið
Börnin skemmta sér í hringekju sem komið hefur verið fyrir framan stjórnarráðshúsið
Mikil mannmergð er í miðbæ Reykjavíkur þar sem fólk er saman komið til að fagna 17. júní.

Hátíðardagskrá gengur samkvæmt áætlun.

Að sögn lögreglu hafa engin vandamál komið upp og allt gengið eins og í sögum.

Fyrir hálfri klukkustund hófst hátíðardagskrá á Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, til heiðurs afmælisbarninu.

Þar eru forseti Íslands og forsætisráðherra, auk fleira mektarfólks saman komin.

Hátíðargestir á Akureyri skemmta sér vel.

Nokkuð rigndi þar í morgun en stytti upp um hádegið og vonir standa til að hann lafi þurr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×