Innlent

Bifreið valt við Þjórsárbrú

Mynd úr safni og tengist fréttinni ekki beint
Ungur karlmaður missti stjórn á bifreið sinn í lausamöl rétt austan við Þjórsárbrú um hálfáttaleytið í morgun með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf veginum og valt. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp með minniháttar meiðsli en bifreiðin er ónýt.

Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt og voru þrír til viðbótar stöðvaðir þar fyrir að keyra réttindalausir.

Þá hafði Lögreglan á Akureyri afskipti af tveimur ökumönnum. Annar var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og hinn ölvunarakstur.

Nóttin var að öðru leyti afar róleg hjá lögregluembættum landsins og slökkviliði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×