Innlent

Íbúar sveitarfélaga geti kallað eftir atkvæðagreiðslu

Katrín Fjeldsted, læknir og fyrrverandi þingmaður, er formaður B-nefndar stjórnlagaráðs.
Katrín Fjeldsted, læknir og fyrrverandi þingmaður, er formaður B-nefndar stjórnlagaráðs. Mynd/Anton Brink
Sú nefnd stjórnlagaráðs sem fjallar meðal annars um málefni sveitarfélaga leggur til nýmæli um rétt íbúa sveitarfélags til að óska eftir atkvæðagreiðslu um málefni þess. Stjórnlagaráð kom saman til síns 13. fundar klukkan 10 í dag.

Umrædd nefnd, B-nefnd, kynnir þar nýjan kafla um stöðu sveitarfélaga í stjórnarskránni. Þar er tillaga um að stjórnarskrárbinda svokallaða nálægðarreglu, en hún kveður á um að þeir þættir opinberrar þjónustu sem betur þykir fyrir komið í héraði skuli vera á hendi sveitarfélaga. Sem fyrr segir er lagt til nýmæli um rétt íbúa sveitarfélags til að óska eftir atkvæðagreiðslu um málefni þess og kveðið er á um beina samráðsskyldu, við sveitarstjórnir og samtök þeirra, við undirbúning lagasetningar sem varðar málefni sveitarfélaga. Loks leggur nefndin til að embætti umboðsmanns Alþingis verði stjórnarskrárbundið.

Hægt er að fylgjst með fundi stjórnlagaráðs í beinni útsendingu á vefsíðu ráðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×