Innlent

Kassastrákur í 10-11 stal tæpri milljón

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjárdrátt.

Maðurinn vann við afgreiðslustörf í verslunum 10-11 en hann dró sér rúmlega 800 þúsund krónur á þriggja mánaða tímabili á síðasta ári.

Maðurinn játaði brotið skýlaust. Refsing hans er skilorðsbundin til þriggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×