Innlent

Grunnskólabörn selja rítalíntöflu á fimm þúsund krónur

Dæmi eru um að grunnskólabörn á aldrinum 13-15 ára sem taka inn rítalín og önnur skyld lyf vegna ADHD raskana selji rítalíntöfluna á hátt í fimm þúsund krónur á svörtum markaði. ADHD samtökin lýsa yfir áhyggjum vegna þessara mála og hvetja foreldra til að hafa meira eftirlit með lyfjatöku barna sinna.

Umræðan um rítalín og skyld lyf hefur verið áberandi undanfarnar vikur. Læknastéttin hefur meðal annars verið gagnrýnd fyrir að ávísa lyfjum til sprautufíkla í miklu magni og rítalín töflur ganga kaupum og sölum í undirheimum. En svo virðist sem rítalínið komist í undirheima með öðrum leiðum.

Elín Hinriksdóttir varaformaður ADHD samtakanna segist vita um nokkur tilfelli þar sem börn með ADHD selji rítalíntöflur á svörtum markaði sem þau fái ávísuð af læknum.

Hún segist hafa rætt við börn og unglinga og því miður sé til staðar sala á rítalíntöflum og segir það mötulega staðreynd. „Meðan það er eftirspurn er alltaf einhver sem selur," segir hún.

Þetta séu börn í unglingadeildum grunnskólanna á aldrinum 13 til 15 ára. Elín segir að það hafi komið fyrir að ellefu og tólf ára krakkar hafi selt lyfin sín.

Sprautufíklar beiti ýmsum leiðum til að nálgast töflurnar. „Maður hefur heyrt að þeir sem eru í neyslu eða eru að selja þessi lyf hafi leitað í skólana, og leitað til barna sem þeir vita að séu á lyfjum. Annars get ég ekki fullyrt um það, en ég heyrði út undan mér í fyrra að taflan gengi á fimm þúsund krónum."

Elín segir ADHD samtökin hafa áhyggjur af þessu og hvetur foreldra barna sem þurfi að taka inn rítalín og skyld lyf við röskun sinni að hafa eftirlit með lyfjatöku þeirra. „Þetta er fyrst og fremst ábyrgð foreldranna og einstaklingar teljast börn fram að átján ára aldri og foreldrar verða að bera ábyrgð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×