Innlent

Stal sex hnífum og þarf að dúsa á Litla-Hrauni í þrjá mánuði

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur mYND ÚR SAFNI
Karlmaður um fimmtugt var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa brotist inn í verslun á Laugavegi í desember í fyrra og stolið þaðan sex hnífum að verðmæti tæplega 400 þúsund krónum.

Hann á langan brotaferil að baki eða frá árinu 1983 en hann hefur hlotið fjölmarga dóma fyrir skjalfals og umferðar- og auðgunarbrot, síðast árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×