Lífið

Kristrún Ösp og Dwight Yorke byrjuð saman aftur

Kristrún Ösp og Dwight eyddu helginni saman.
Kristrún Ösp og Dwight eyddu helginni saman. MYND/Kristrún Ösp
„Já erum svona að spá í þessu aftur. Ég fór bara stutt út núna og ætla hitta hann aftur í næsta mánuði," svarar Kristrún Ösp fyrirsæta spurð hvort hún sé aftur byrjuð með fótboltakappanum Dwight Yorke.

„Við ætlum líklegast til Barbados eða Trinidad," bætir hún við.

„Ég fór til Manchester að hitta hann yfir helgina og við keyrðum saman til London og höfðum það gott yfir helgina."

„Ég var að koma heim núna rétt áðan," sagði Kristrún Ösp áður en við kvöddum hana rétt í þessu.

Vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×