Innlent

Vilja siðareglur kjörinna fulltrúa í Ísafjarðarbæ

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar vinnur að siðareglunum
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar vinnur að siðareglunum Mynd úr safni
Meirihlutinn í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar leggur til að settar verði siðareglur kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn og nefndum. Eiríkur Finnur Greipsson, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðismanna, og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, oddviti Framsóknarmanna, lögðu fram minnisblað þess efnis á fundi bæjarráðs í gær. þar kemur fram að nokkur sveitarfélög hafa farið þessa leið, þar á meðal Reykjavík og Hafnarfjörður.

Bæjarráð samþykkti að áfram verði haldið með undirbúning að siðareglum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×