Innlent

Banaslys í Kverkfjöllum

Erlendur karlmaður á sextugsaldri beið bana þegar hann varð undir íshröngli sem féll á hann í munna íshellis í Kverkfjöllum í gærdag.

Hann var leiðsögumaður sex manna hóps, en engan úr hópnum sakaði. Björgunarsveitarmenn og lögregla fóru á vettvang og fer lögreglan á Egilsstöðum með rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×