Sorptunnureglan tekur gildi í ágúst 24. júní 2011 12:21
Ákveðið hefur verið að fresta því að umdeild sorptunnuregla taki gildi í Reykjavík en hún kveður á um sérstakt gjald vegna sorptunna sem eru lengra en 15 metra frá götu. Á fundi umhverfis- og samgönguráðs í desember voru gerðar breytingar á samþykktum borgarinnar um meðhöndlun sorps í Reykjavík. Hluti af breytingunum fólust í upptöku sérstaks gjalds til þeirra sem eiga hús þar sem sækja þarf ruslatunnurnar e lengra en 15 metra frá ruslabíl. Breytingarnar voru samþykktar einróma, sem þýðir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna studdu þær. Í sérstakri umsögn Kristbjargar Stephensen, borgarlögmanns, sem fréttastofa hefur undir höndum og var unnin vegna fyrirspurnar Mörtu Guðjónsdóttur, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, segir að 15 metra reglan eigi sér næga stoð í lögum og brjóti ekki gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Þá telur hún að fyrirkomulag að bjóða íbúum sem eru með ruslatunnur sínar lengra en 14 metrum frá sorpbíl upp á valkvæða þjónustu, þ.e að fá sorpið sótt heim og greiða fyrir það hærra gjald, geti vel fallið að samþykktum um meðhöndlun úrgangs í borginni. Hins vegar segir borgarlögmaður í umsögn sinni að í gjaldskrá Sorphirðu Reykjavíkurborgar sé gengið lengra en ákvæði samþykktarinnar um meðhöndlun úrgangs feli sér en í gjaldskránni er gengið út frá því að sorptunnur verði eingöngu sóttar 15 metra frá sorpbílnum nema greitt sé sérstakt gjald, 4800 krónur. Telur hún vafa leika á því að slík framkvæmd standist ef hennar sér ekki stað í samþykktum borgarinnar. Þá dregur hún í efa að upphæðin, 4800 krónur, uppfylli kröfur sem gera verði um rökstuðning fyrir þjónustugjaldi. Reykjavíkurborg hefur nú tekið ákvörðun um að fresta gildistöku reglnanna þangað til í ágúst næstkomandi meðal annars vegna þessarar óvissu um tilhögun gjaldtökunnar.
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Innlent „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Fleiri fréttir Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Sjá meira