Innlent

Grásleppuveiðin að lifna við

Heldur er að lifna yfir grásleppuveiðinni á þessari vertíð, eftir fremur lélega byrjun.

Heildarveiðin núna er um 40 prósentum minni en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir að fleiri bátar stundi veiðarnar núna en þá, samkvæmt upplýsingum Landssambands smábátaegigenda. 357 bátar hafa leyfi til grásleppuveiða í ár, tólf fleiri en í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×