Innlent

Níu manna gönguhópur þurfti aðstoð

Björgunarsveitarmenn úr Skagafirði voru kallaðir út laust fyrir miðnætti til að aðstoða fólk í níu manna gönguhópi innst í Kolbeinsdal. 

Einhverjir úr hópnum voru við það að örmagnast og kallaði leiðsögumaðurinn eftir aðstoð. Eftir því sem fréttastofa kemst næst gekk leiðangurinn vel, enda var vitað hvar fólkið var,  og ekki þurfti að senda sjúkrabíl eftir neinum. Björgunarsveitarmenn hafa þvi ekið fólkinu í næturstað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×