Innlent

Kjalvegur opinn

Búið er að opna Kjalveg, samkvæmt heimasíðu Vegagerðarinnar, en fjölmargir hálendisvegir, sem venjulega er löngu búið að opna á þessum árstíma, eru enn lokaðir, þar sem snjór hefur legið yfir vegunum. 

Vegagerðin hefur takmarkað fé til snjómoksturs á hálendinu, en þó hafa nokkrir vegir verið ruddir, en umferð verður ekki hleypt á þá fyrr en þeir þorna. Reiknað er með að margir hálendisvegir verið opnaðir upp úr næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×