Innlent

Tólf teknir á Reykjanesbraut - einn á 133 kílómetra hraða

Reykjanesbraut
Reykjanesbraut Mynd/Hari
Tólf ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Reykjanesbrautinni í dag. Sá sem hraðast ók var á 133 kílómetra hraða og bíður hans nú 90 þúsund króna sekt og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Sá sem ók „hægast“ af þeim sem voru teknir í dag var á 114 kílómetra hraða og fær hann 50 þúsund króna sekt og einn refsipunkt í ökuferilsskrá.

Lögreglan á Suðurnesjum er með sérstakt umferðareftirlit í gangi þessa dagana og munu því ökumenn eiga von á því að sjá lögregluna við mælingar á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×