Fjármálaráðherra vonar að fasteignaverð kalli ekki á verðbólgu Heimir Már Pétursson. skrifar 23. júní 2011 18:46
Fjármálaráðherra segir hækkandi húsnæðisverð auka á verðbólguna og vonar að húsnæðisverð sveiflist ekki of hratt upp á við. Hann telur alltaf ástæðu til að hafa áhyggjur af víxlhækkunum launa og verðlags en óttast ekki áhrif boðaðra verðhækkana á mjólkurvörum. Mjólk og mjókurvörur munu samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar hækka um 4,25 til 6,7 prósent um næstu mánaðamót og telur hagfræðingur Alþýðusambandsins það vera umfram forsendur kjarasamninga, skerða kaupmátt og auka verðbólgu. „Auðvitað höfum við alltaf áhyggjur og við höfum áhyggjur af því að verðbólgan hefur aðeins þokast upp á við. En þetta eitt og sér vegur nú ekki þungt í því. Hér er væntanlega um að ræða einhverja uppsafnaða þörf og hér er um verðlagsákvörðun að ræða, sem eru orðnar fátíðar. Síðan er spurning hversu lengi þessi verðlagning endist inn í framtíðina," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Innlend matvara hafi ekki átt þátt í hækkun verðbólgu undanfarin misseri. Gengi krónunnar hafi gefið eftir frá áramótum og innflutt hrávara eins og korn og olíuvörur hafi hækkað í verði á heimsmarkaði. -Og þar tala menn um að álögur á bensíni séu orðnar allt of miklar. Væri ekki lag núna að lækka þær álögur? „Nei, nú er það þannig að bensínverð er með því lægsta sem sem fyrirfinnst í Evrópu hér á Íslandi. Það er mun lægra en á hinum Norðurlöndunum. Það kostar frá 15 upp í 50 til 60 krónum meira bensínlitrinn hjá frændum okkar á hinum Norðurlöndunum. Skatthlutfallið er lægra hér en á hinum Norðurlöndunum. Við erum undir helmingi af útsöluverðinu. Það helgast af því af því að bensín- og olíugjöld eru föst í krónutölu," segir fjármálaráðherra. Nú sé mikið þrýst á vegaframkvæmdir og gjöld á eldsneyti standi undir þeim framkvæmdum. Hins vegar hafi hækkun húsnæðisverðs að undanförnu haft áhrif til hækkunar verðbólgu. „Ég held að það sé heldur ekki æskileg þróun að þar verði miklar sveiflur eða snöggar. En að sjálfsögðu er það jákvætt að það er að lifna yfir fasteignaviðskiptum og verðlækkunarhrinan er hengin yfir," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Innlent „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Fleiri fréttir Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Sjá meira