Innlent

Vettvangshjálparlið sett á fót á Flúðum

Samkomulag um stofnun 13 manna vettvangshjálparliðs á Flúðum var undirritað af Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Björgunarfélagi Eyvinds á Flúðum, Lögreglunni í Árnessýslu og Árnesingadeild Rauða Krossins þann 21. júní síðastliðinn.

Vettvangsliðarnir, sem verða í sambandi við Neyðarlínuna, munu koma til aðstoðar í alvarlegum slysum og veikindum og hefja fyrstu hjálp ef langt er í lögreglu og sjúkraflutningslið. Þeir munu vera í sambandi við sjúkraflutninga, lækna og lögreglu og vinna undir þeirra stjórn á vettvangi auk þess sem þeir hafa leyfi til að aka forgangsakstur sé þess óskað.

Allur nauðsynlegur sjúkrabúnaður mun koma frá Árnesingadeild Rauða Krossins og mun Heilbrigðisstofnun Suðurlands útvega nauðsynleg lyf og fleira sem þarf hverju sinni.

Vettvangsliðum verður gert að sækja þjálfun og námskeið hjá sjúkraflutningamönnum Heilbrigðisstofnunarinnar og verða auk þess skyldugir til að mæta í starfssþjálfun að lágmarki 24 klst. á ári.

Samkomulagið gildir í tvö ár en fyrirkomulagið hefur þegar verið reynt á Kjalarnesinu og gengið mjög vel en þar hefur til að mynda þremur einstaklingum verið bjargað úr hjartastoppi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×