Innlent

Hjólar um Vestfirði fyrir Grensásdeild

Hávarður Tryggvason að leggja í hann frá Silfurtorgi á Ísafirði, hér ásamt Daníel Jakobssyni bæjarstjóra.
Hávarður Tryggvason að leggja í hann frá Silfurtorgi á Ísafirði, hér ásamt Daníel Jakobssyni bæjarstjóra.
Hjólagarpurinn, Ísfirðingurinn og kontrabassaleikarinn Hávarður Tryggvason lagði upp í hjólreiðaferð um Vestfirði í gær til styrktar Grensásdeild sem hluti af átakinu Á rás fyrir Grensás.

Hávarður lagði af stað frá Ísafirði og kvaddi Daníel Jakobsson bæjarstjóri hann á Silfurtorgi.

Hávarður hjólar sem leið liggur vestur yfir heiðar, í gegnum Bíldudal og Patreksfjörð, Flókalund, innfirði Breiðafjarðar, Steinadalsheiði, Hólmavík og Ísafjarðardjúp aftur til Ísafjarðar. Alls er þetta tæplega 700 kílómetra vegalengd og 5 þúsund metrar í hækkanir yfir fjallvegi.

Þeim sem vilja heita á Hávarð er bent á heimasíðu Grensásdeildar undir liðnum Á rás fyrir Grensás, eða á söfnunarreikning átaksins, reikningsnúmer: 311-26-3110, kennitala: 670406-1210.

Í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ er Hávarði óskað alls hins besta á leið hans um fjórðunginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×