Innlent

Árangurslaus fundur með flugmönnum

MYND/Valgarður
Ekki náðist niðurstaða á löngum samningafundi flugmanna hjá Icelandair og viðsemjenda þeirar hjá Ríkissáttasemjara, sem var slitið í gærkvöldi. Annar fundur hefur verið boðaður klukkan hálf ellefu fyrir hádegi, en flugmenn hafa boðað yfirvinnubann  hjá félaginu, sem hefst á morgun, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Það gæti raskað flugi  umtalsvert, því þá mega flugmenn á frívakt ekki hlaupa í skarðið ef einhver flugmaður forfallast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×