Innlent

Gjaldið hækkar í göngin

Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar um um það bil tíu prósent um næstu mánaðamót. Í tilkynningu frá rekstrarfélagi ganganna segir  að hækkunina megi rekja til samdráttar í umferð og þar með skertra tekna, þyngri greiðslubyrði af lánum og mikillar fjárfestingar til að uppfylla kröfur Evrópusambandsins um öryggi vegfarenda um veggöng. Venjulegt gjald fyrri fólksbíl aðra leið hækkar úr 900 krónum í þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×