Innlent

Fimmtán ára handtekinn með fíkniefni í Vestmannaeyjum

Kannabis. Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Kannabis. Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Tvö fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Vestmannaeyjum í byrjun vikunnar. Lögreglan hafði afskipti af tveimur einstaklingum vegna gruns um að þeir væru með fíkniefni á sér.

Í kjölfarið var farið í þrjár húsleitir í tengslum við rannsóknina og fundust um 7-8 grömm af kannabisefnum ásamt áhöldum til neyslu fíkniefna.

Einnig fannst nokkuð af peningum sem grunur leikur á að hafi verið notaðir til fíkniefnaviðskipta.

Annar maðurinn er á sextánda ári en í hinu tilvikinu er um að ræða mann á fertugsaldri sem hefur ekki áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefna.  Málin teljast að mestu upplýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×