
"Við vorum við veiðar í Krossá Skarðsströnd þann 5-7 júlí, komum í brakandi blíðu og áinn var vægast sagt stór ! Þvílíkt stórfljót! Vorum ekkert svaka vongóðir þar sem veiðibókin sagði að það væru komnir 9 laxar á land og teljarinn sagði 10 laxar :( en við hófum að kasta á stað sem að heitir Bakkafljót nr 2. og strax kom einn 6 pundari. Við prufuðum svo að kasta á breiðuna fyrir neðan Bakkafljótið og það var ekki að spyrja að því, 8 punda hrygna var komin á, 79 cm :) Þetta var svo reynt
aftur og vitir menn einn en var komin á! Núna var það 9 pundari og 80cm! En
hollið endaði í 9 löxum og 1 sjógengnum urriða. Þetta lofar því góðu fyrir
sumarið :) Skemmtileg ferð í alla staði!"
Með Kv:
Daníel Örn Jóhannesson