Innlent

Landsliðið í hestaíþróttum fullskipað

Nítján knapar skipa landsliðið í hestaíþróttum sem keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í Austurríki sem hefst 1. ágúst. Þrír heimsmeistarar frá HM 2009 eiga keppnisrétt á HM 2011, að því er fram kemur í tilkynningu.

„Landssamband hestamannafélaga er afar stolt af liðinu sem hefur á að skipa reyndum og sterkum knöpum og hestum og væntir mikils af því á keppnisvöllunum í St. Radegund í Austurríki í ágúst,“ segir í tilkynningunni.

Liðið er þannig skipað:

Íþróttaknapar

Heimsmeistarar frá 2009:

Jóhann Rúnar Skúlason og Hnokki frá Fellskoti – T1 og V1

Bergþór Eggertsson og Lotus van Aldenghoor – 250m, 100m og gæð.sk.

Rúna Einarsdóttir-Zingsheim og Freyr von Nordsternhof – T2, F1, 100m og gæð.sk.

Fullorðnir valdir eftir lykli Landsliðsnefndar LH:

Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi – T1 og V1

Eyjólfur Þorsteinsson og Ósk frá Þingnesi – T2 og V1

Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri – T1, F1, 250m, 100m og gæð.sk.

Hulda Gústafsdóttir og Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu – T1 og V1

Ungmenni valin eftir lykli Landsliðsnefndar LH:

Hekla Katharina Kristinsdóttir og Gautrekur frá Torfastöðum – T1 og V1

Fullorðnir liðstjóravaldir:

Haukur Tryggvason og Baltasar  vom Freyelhof – T1, F1, 100m og gæð.sk.

Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjarbakka – T1, F1, P1, P2 og PP2.

Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki – T1 og V1

Ungmenni liðstjóravalin:

Agnes Hekla Árnadóttir og Vignir frá Selfossi – T1 og V1

Arnar Bjarki Sigurðarson og Röskur frá Sunnuhvoli – T1 og V1

Kynbótaknapar og hross

Vignir Jónasson og Gjöf frá Magnússkógum – 7v og eldri hryssur

Erlingur Erlingsson og Rauðhetta frá Kommu – 6 v hryssur

Helga Una Björnsdóttir og Smá frá Þúfu – 5v hryssur

Jakob Svavar Sigurðsson og Glotti frá Sveinatungu – 7v og eldri stóðhestar

Sigurður Matthíasson og Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu – 6v stóðhestar

Sigurður Óli Kristinsson og Feykir frá Háholti – 5v stóðhestar

Landsliðseinvaldar eru þeir Einar Öder Magnússon og Hafliði Halldórsson. Dýralæknir liðsins er Susanne Braun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×