Innlent

Dópaður vélhjólamaður í mikilli umferð

Lögreglumenn mældu vélhjól á 157 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi á móts við Korpúlfsstaði í síðdegisumferðinni upp úr klukkan fimm í gær og stefndi hjólið til borgarinnar.

Ökumaðurinn virti stöðvunarmerki lögreglu að vettugi og í stað þess að reyna eftirför, voru lögreglubílar sendir til móts við hjólið, og stöðvuðu það á móts við Select á Vesturlandsvegi.

Ökumaðurinn viðurkenndi að hafa reynt að stinga lögregluna af til að sleppa við sektir, en við nánari athugun reyndist hann undir áhrifum bæði kannabis og kókaíns. Hann var sviftur ökuréttindum þegar í stað og hald lagt á hjólið. Það verður hugsanlega gert upptækt, ef athæfi mannsins telst varða við almannahættu, en töluverð umferð var þegar þetta gerðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×