Innlent

Enn er fundað í Karphúsinu

Mynd/Pjetur
Samningamenn flugmanna hjá Icelandair og samningamenn félagsins gengu til formlegs sáttafundar í Karphúsinu klukkan þrjú í dag, en árangurslausum fundi þeirra var slitið á föstudag. Ef samkomulag næst ekki í kvöld kemur boðað yfirvinnubann flugmanna Icelandair til framkvæmda klukkan tvö á morgun.

Óformlega þreifingar voru á milli málsaðilana um helgina og því þótti ástæða til að funda. Fundurinn stendur enn og búist er við því að honum verði ekki slitið fyrr en seint í kvöld.

Að sögn upplýsingafulltrúa Icelandair er ekki búist við því að yfirvinnubannið hafi nokkur áhrif á ferðir félagsins á morgun en farþegar eru engu að síður hvattir til að fylgjast vel með áætlun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×