Innlent

Enn í lífshættu eftir morðtilraun á Monte Carlo

Landspítalinn í Fossvogi
Landspítalinn í Fossvogi
Karlmanni á fimmtudagsaldri, sem var stunginn í hálsinn með hnífi á veitingastaðnum Monte Carlo á fimmtudagskvöld, er enn haldið sofandi í öndunarvél og er í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans.

Árásarmaðurinn, sem er tæplega fertugur með erlent ríkisfang, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júlí næstkomandi. Lögregla hefur yfirheyrt fjölda vitna sem voru á staðnum þegar árásin var gerð en hún er rannsökuð sem stórfelld líkamsárás.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×