Innlent

Upprættu kannabisræktun í bílskúr

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti kannabisræktun í bílskúr við íbúðarhús í Grafarholti í gærkvöldi.

Þar voru 18 plöntur langt komnar í ræktun, stolnir gróðurhúsalampar og annar búnaður til ræktunarinnar. Lögregla lagði hald á plöntur og búnað, en húsráðandi, sem ekki var heima, verður boðaður til yfirheyrslu í dag.

Það var lykt frá skúrnum sem kom lögreglu á sporið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×