Innlent

Fengu engar upplýsingar þrátt fyrir tafir

Farþegar Iceland Express fengu litlar sem engar upplýsingar meðan þeir biðu í einn og hálfan sólarhring eftir að flug þeirra frá París til Keflavíkur færi í loftið. Forstjóri fyrirtækisins ætlar að reyna bæta farþegum tjónið.

Það var klukkan hálf tvö í nótt sem að leiguflugvél á vegum Finnair lenti með farþega Iceland Express á Keflavíkurflugvelli, einum og hálfum sólarhring eftir áætlun.

Ástæða seinkunarinnar var að vél Iceland Express bilaði og erfiðlega gekk að fá aðra vél og áhöfn í staðinn. Farþegar þurftu að bíða klukkustundum saman á flugvellinum án nokkurra upplýsinga.

„Það voru engin samskipti við Iceland Express. Við fórum að reyna að hringja í þá í svokallað neyðarnúmer, það var bara stundum svarað. Síðan hringdum við í skiptiborðið og þar var maður númer 19 og 28 þannig einu upplýsingarnar sem við fengum voru af starfsmönnum þegar fólk fór að leita og fann einhverja á flugvellinum og spurði hvað er að gerast, af hverju fáum við ekki að vita neitt?" spyr Óli Barðdal, einn farþeganna.

Farþegar fengu loks gistingu á hóteli í fyrrinótt en þar var þeim raðað fjórum saman á herbergi sama hvort þeir þekktust eða ekki. Þegar komið var um borð í leiguflugvélina seint í gærkvöld kom síðan í ljós að einungis nokkrar vatnsflöskur voru um borð.

Margir erlendir ferðamenn voru með fluginu og voru þeir að vonum ósáttir með upphafið á Íslandsheimsókn sinni.

Matthías Imsland forstjóri Iceland Express segir marga hluti hafa farið úrskeiðis í París þar sem samstarfsaðilar félagsins hafi ekki sinnt sínu hlutverki í upplýsingagjöf og þjónustu við farþega vélarinnar. „Ég satt að segja og við hjá Iceland Express erum hálf slegin yfir því sem að við höfum heyrt og við ætlum að reyna að bæta farþegum þetta eins og hægt er og jafnframt skoða verkferla og jafnvel endurskoða samstarfið við þessa aðila úti í Frakklandi," segir Matthías.

„Það eru allir í vélinni búnir að segja aldrei Iceland Express aftur. Það er stundum erfitt að segja aldrei þar sem maður veit ekki hvað gerist á morgun, en í dag ætla ég aldrei að gera það aftur," segir Óli Barðdal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×