Innlent

Kærður fyrir að planka á lögreglubíl

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ungar konur planka í sundlaug. Mynd/ Getty.
Ungar konur planka í sundlaug. Mynd/ Getty.
Lögreglan í Álasundi í Noregi fékk tilkynningu um það klukkan fjögur í nótt að norskum tíma að ungur karlmaður væri að planka á kyrrstæðum lögreglubíl í miðborginni. Norska blaðið Aftenposten útskýrir uppátækið að planka með þeim hætti að það sé ný tómstundaiðja hjá ungu fólki sem felur í sér að liggja flatur með andlitið niðri, oft á óhefðbundnum stöðum. Svo séu birtar myndir af því á samfélagssíðum. Uppátækið megi rekja til Ástralíu. Aftenposten segir jafnframt að í maí síðastliðnum hafi lögreglan í borginni Karmøy varað fólk við hættulegu planki. Ungi maðurinn í Álasundi var kærður fyrir plankið, segir norska lögreglan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×