Innlent

Ástand mannsins óbreytt - enn sofandi í öndunarvél

Maðurinn sem ráðist var á með hnífi á veitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg um miðnætti liggur enn á gjörgæslu. Ástand hans er óbreytt, hann er án meðvitundar og í öndunarvél.

Slagæð á hálsi mannsins skarst í sundur þegar árásarmaðurinn lagði til hans með hnífnum og hafði honum þegar blætt mikið þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á staðinn, en tilkynnt hafði verið um óðan mann sem gekk berserksgang á veitingastaðnum.

Árásarmaðurinn var úrskurðaður í tveggja vikna langt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og verður því í varðhaldi til 29. júlí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×