Innlent

Brúin gæti opnað á morgun

Brúin skemmdist á laugardaginn en búist er við að hún geti opnað á morgun.
Brúin skemmdist á laugardaginn en búist er við að hún geti opnað á morgun. Mynd/Ólafur Sigurjónsson
Reiknað er með að hleypa umferð um brúna yfir Múlakvísl á morgun eða á sunnudaginn en brúarsmíðin hefur gengið betur en reiknað var með í upphafi.

Eftir að búið verður að veita ánni undir nýju bráðabrigðabrúna, sem gert verður síðdegis í dag föstudag eða klukkan fimm, verður staðan metin með tilliti til þess hvenær hægt verður að hleypa umferð á brúna og opna þar með Hringveginn að nýju.

Tímasetningar á þessari opnun verða þó ekki endanlegar fyrr en á laugardagsmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×