Innlent

Segir þingmenn missa þvag út af Byr-málinu

Björn Valur Gíslason þingmaður VG.
Björn Valur Gíslason þingmaður VG.
Björn Valur Gíslason þingmaður og varaformaður fjárlaganefndar segir að söluverðið á Byr til Íslandsbanka verða upplýst þegar salan hefur endanlega gengið í gegn.

„ Söluverðið mun koma fram í ríkisreikningi ársins eins og vera ber. Nema hvað? Hvaða ástæða ætti annars að vera fyrir því að halda söluverðinu leyndu?" segir Björn á vefsíðu sinni.

„Meðalgáfaður fréttamaður ætti að gera sér grein fyrir því að útgjöld eða tekjur ríkisins eru opinber og ómögulegt að halda leyndu jafnvel þó svo að menn reyndu hvað þeir gætu í því," segir hann og tekur einkavæðingu bankanna sem dæmi. „Menn komust reyndar ansi nálægt því við einkavinavæðingu bankanna á sínum tíma þegar allskonar söluverð var skáldað upp sem á endanum var aldrei greitt (a.m.k. hvað Landsbankann varðar) og hefði auðvitað átt að skila sér í reikningum ríkisins en gerði hinsvegar aldrei.“

Hann segir að aðalmálið sé að salan á Byr sé mjög jákvæð fyrir skattgreiðendur sem munu losna undan því að ábyrgjast innistæður bankans þar sem einkaaðili hefur keypt bankann. „Út frá þeim sjónarhóli ættu talsmenn skattgreiðenda að fagna sölunni í stað þess að hnýta í hana. Ríkið er þó ekki að græða á sölunni, því miður heldur mun salan líklega vera á pari við útlagan kostnað eins og fram hefur komið."

Hann heldur svo áfram og segir: „Þeir þingmenn sem eru við það að missa þvag út af þessu máli og telja það svo alvarlegt að kalla verði saman neyðarfundi í nefndum þingsins vegna þess ættu að nýta tíma sinn í annað. Jafnvel að upplýsa þjóðina um sín eigin óupplýstu pólitísku fjármál," segir Björn Valur en Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, höfðaði mál gegn honum vegna orða hans um mútur og styrki til Guðlaugs Þórs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×